Sjö þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp um afnám stimpilgjalds vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði.
Mun þetta vera í tíunda sinn sem frumvarpið er lagt fram á Alþingi. Einstaklingum ber nú almennt að greiða 0,8% stimpilgjald vegna kaupa á íbúðarhúsnæði en þó er veittur helmingsafsláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða.
Verði frumvarpið að lögum mun gjaldið falla alfarið niður vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði og lögbýlum og undanþágan verður ekki bundin við fyrstu kaup.
Líkt og í fyrra eru flutningsmenn Vilhjálmur Árnason, Diljá Mist Einarsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Ásmundur Friðriksson. Þau fá þó aukinn liðstyrk í ár frá samflokksmönnum sínum en Birgir Þórarinsson, Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður og Jón Gunnarsson eru einnig flutningsmenn að sinni.
„Mikil þörf er á að auðvelda fólki eins og frekast er unnt að eignast íbúðarhúsnæði, einkum við aðstæður á borð við þær sem nú ríkja á húsnæðismarkaði. Þá eru stimpilgjöld orðin úrelt skattheimta sem hefur takmörkuð áhrif á ríkissjóð,” segir í greinargerð.
Í greinargerðinni er einnig rifjað upp að þegar gildandi lög um stimpilgjöld voru samþykkt á Alþingi kom m.a. fram í áliti efnahags- og viðskiptanefndar að vonir nefndarinnar standi „til þess að frumvarpið verði fyrsta skrefið af mörgum í lækkun stimpilgjalda sem á endanum muni leiða til afnáms þeirra.“
Þáverandi efnahags- og viðskiptanefnd lagði til þá breytingu að helmingsafsláttur yrði veittur af gjaldinu vegna fyrstu fasteignakaupa.
Nú þegar bráðum áratugur er liðinn frá samþykkt gildandi laga um stimpilgjald þykir rétt að halda áfram þeirri vegferð sem þá var lagt upp í um afnám stimpilgjalds vegna fasteignakaupa til fulls.
Þá er einnig tekið fram að stimpilgjaldið hækki viðskiptakostnað á fasteignamarkaði, dragi úr framboði og rýri hlut kaupenda og seljenda. Þá benda rannsóknir til þess að stimpilgjald hafi skaðlegri áhrif á velferð en aðrar tegundir skattheimtu.
„Af framangreindu má ætla að afnám stimpilgjalds af fasteignaviðskiptum muni auðvelda verðmyndun á húsnæðismarkaði með tilheyrandi aukningu á framboði sem hefur verið með minnsta móti undanfarin ár. Þá er afnám stimpilgjalds vegna fasteignakaupa til þess fallið að minnka kostnað fyrir heimili við að skipta um húsnæði, hvort sem er fyrir eldra fólk sem vill minnka við sig eða barnafjölskyldur sem þurfa stærra húsnæði,“ segir í greinargerð.