Breska lúxustískuvörumerkið Burberry hefur varað við því að það gæti neyðst til að segja upp 1.700 starfsmönnum um allan heim fyrir 2027 í hagræðingarskyni en fyrirtækið hefur verið að reyna að snúa við gengi rekstursins.

Þetta kemur fram á vef FT en þar segir að Burberry hafi meðal annars ráðið fyrir Joshua Schulman, fyrrum forstjóra Coach and Jimmy Choo, í júlí í fyrra í von um að blása nýju lífi í félagið.

Burberry greindi nýlega frá 17% tekjulækkun niður í 2,5 milljarða punda á síðustu 12 mánuðum fram að 29. mars. Rekstrartap fyrirtækisins nam þá þremur milljónum punda samanborið við 418 milljóna punda hagnað árið á undan.

Uppsagnirnar myndu þýða niðurskurð á rúmlega fimmtungi starfsmanna fyrirtækisins en það myndi þá spara Burberry 100 milljónir punda á ári.