Tölvuþrjótar sem herjuðu á verslanir Marks & Spencer í Bretlandi sendu tölvupóst beint til forstjóra fyrirtækisins, Stuart Machin, þar sem þeir montuðu sig af árásinni og kröfðust greiðslu.
Skilaboðin voru send 23. apríl sl. frá tölvuþrjótahópnum DragonForce í gegnum tölvupóst starfsmanns og að sögn BBC voru skilaboðin skrifuð á brotinni ensku.
„Við höfum gengið frá Kína alla leið til Bretlands og höfum nauðgað fyrirtækinu þínu miskunnarlaust og dulkóðað alla netþjóna. Drekinn vill tala við þig svo vinsamlegast færðu þig yfir á hulduvefinn,“ skrifuðu tölvuþrjótarnir í samskiptum sínum.
Hingað til hefur M&S neitað að viðurkenna árásina en hún var gríðarlega skaðleg fyrir fyrirtækið og kostaði það um 300 milljónir punda. Fyrirtækið getur ekki enn tekið við netpöntunum, sex vikum eftir árásina.