Þýski vopnaframleiðandinn Rheinmetall hefur stofnað nýtt dótturfélag í Suður-Afríku undir heitinu Rheinmetall Resonant South Africa. Á vef WSJ segir að félagið hafi verið stofnað til að mæta vaxandi eftirspurn eftir skotfærum.

Stofnun fyrirtækisins er enn háð samþykki frá yfirvöldum í landinu en eftir það mun Rheinmetall Waffe Munition eignast 51% hlut í samrekstrinum.

Resonant Holding eignast þá 49% hlut en að sögn Rheinmetall er búist við því að árlegar sölutekjur fyrirtækisins verði í kringum 100 milljónir evra. Dótturfélagið mun þá koma til með að styrkja stöðu Rheinmetall í framleiðslu á drifefni og sprengjum.

Á síðu WSJ segir jafnframt að bæði fyrirtækin hafi ekki viljað tjá sig um kaupverð samningsins.