Norska ríkið stefnir að því að selja allan 6,3% eignarhlut sinn í flugfélaginu Norwegian, sem félagið eignaðist í síðasta mánuði, í gegnum tilboðsfyrirkomulag (e. accelerated bookbuild process) samkvæmt kauphallartilkynningu.
Hið lokaða útboð hófst eftir lokun markaða í Noregi í dag og lýkur kl. 8 á staðartíma í fyrramálið. Í tilkynningunni segir að ríkið íhugi að selja allan eignarhlut sinn í útboðinu.
Norska ríkið eignaðist yfir 6% hlut í Norwegian í síðasta mánuði eftir að það ákvað að umbreyta breytanlegu láni, sem það veitti flugfélaginu í Covid-faraldrinum, í hlutafé.
Alls á ríkið 65,6 milljónir hluta í flugfélaginu sem eru um 922 milljónir norskra króna að markaðsvirði, eða sem nemur 11,6 milljörðum íslenskra króna, miðað við 14,06 norskra króna dagslokagengi Norwegian.