Enn ríkir óvissa um stöðuna í Grindavík en ríkisstjórnin ákvað á mánudaginn að taka „óvissuna í fangið“ og verður endanleg lausn fyrir Grindvíkinga kynnt í byrjun febrúar.
Samhliða því framlengdi ríkisstjórnin skammtímalausnir fyrir Grindvíkinga fram í júní á meðan unnið er að því að leysa úr óvissunni með varanlegri lausn.
Meginskuldbinding ríkisins er að Grindvíkingar geti tekið ákvörðun um að setjast að á nýjum stað og fengið eigið fé í sinni fast-eign greitt úr ríkissjóði. Ríkið er einnig að skoða uppkaupaleið á fasteignum Grindvíkinga en útfærsla liggur ekki fyrir. Aðgerðirnar voru kynntar sem sameiginlegt úrlausnarefni fjármálastofnana, lífeyrissjóða og ríkissjóðs.
Í vikunni kom einnig til tals að eignir Náttúruhamfaratryggingar Íslands gætu fjár-magnað aðgerðirnar með einhverjum hætti. Lögbundið hlutverk NTÍ er þó að bæta beint tjón af völdum náttúruhamfara og því gæti þurft lagabreytingu ef eignir sjóðsins eiga að fara í uppkaupaleið ríkisstjórnarinnar eða greiða út eigið fé.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði