Breska ríkisstjórnin tilkynnti í morgun um að hún hyggist fjárfesta fyrir allt að 14,2 milljarða punda í uppbyggingu nýs kjarnorkuvers í Suffolk-sýslu á austurströnd Englands.
Franska kjarnorkufyrirtækið Electricite de France (EDF) mun sjá um uppbyggingu kjarnorkuversins og verður jafnframt meðeigandi. Breska ríkisstjórnin vonast til að fá fleiri fjárfesta að verkefninu.
Sizewell C verkefnið hefur verið í burðarliðnum um í talsverðan tíma. Auk EDF kom kínverska kjarnorkufyrirtækið China General Nuclear Power Group (CGN) einnig að verkefninu á sínum tíma en bresk stjórnvöld keyptu kínverska fyrirtækið út árið 2022. Breska ríkið á nú 83,5% af verkefninu á móti EDF.
Framkvæmdaleyfi fékkst í janúar 2024. Gert er ráð fyrir að uppbyggingin muni taka á bilinu 9-12 ár og verður því ekki komin formlega í rekstur fyrr en árið 2033 hið fyrsta, að því er segir í umfjöllun SkyNews.
Auk ofangreinds kjarnorkuvers segist ríkisstjórnin einnig ætla að fjárfesta fyrir 2,5 milljarða dala í smærri SMR-kjarnakljúfum í samstarfi við ríkisfyrirtækið Great British Energy.
Orkumálaráðherra Bretlands, Ed Miliband, sagði við fjölmiðla að þörf væri á aukinni kjarnorkuframleiðslu til að ná fram nýrri gullöld af hreinni orku. Kjarnorka vó um 14% af heildar raforkuframleiðslu Bretlands í fyrra.