Gengi bréfa Íslandsbanka hækkaði um 0,83% í 62 milljóna króna viðskiptum í dag. Stendur gengi félagsins nú í 122 krónum á hlut.

Þá hækkaði gengi bréfa Kviku um tæpt prósentustig í 213 milljóna króna viðskiptum.

Í heildina nam velta á aðalmarkaði 2,9 milljörðum króna. Þar af nam velta með bréf Arion banka 724 milljónum króna. Þar á eftir koma bréf Oculis með veltu upp á tæplega hálfan milljarð króna.

Gengi bréfa fasteignafélaganna Reita, Heima og Kaldalóns lækkaði í viðskiptum dagsins. Hlutabréfaverð Kaldalóns lækkaði lítillega í fjögurra milljóna króna viðskiptum, gengi Heima lækkaði um rúmlega hálft prósentustig í 192 milljóna króna viðskiptum og gengi Reita lækkaði um 1,33% í 309 milljóna króna viðskiptum.

Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,37% og stóð í 2.900,77 stigum í lok dags.