Rotovia hf., sem starfaði áður undir merkjum Sæplast, hefur fest kaup á mexíkóska fyrirtækinu Ollin Plastics.

„Kaupin marka tímamót fyrir samstæðu Rotovia sem getur nú þjónustað alþjóðlega viðskiptavini sína í Norður-Ameríku í ríkari mæli en áður, en kaupin styðja einnig fyrirætlanir Rotovia um ytri vöxt,“ segir í fréttatilkynningu.

Velta 2,7 milljörðum króna á ári

Ollin Plastics er staðsett í Monterrey í Mexíkó og sérhæfir sig í hágæða hverfissteyptum vörum. Verksmiðjan hóf starfsemi árið 2022 og býður viðskiptavinum sínum upp á stuðning við vöruhönnun ásamt miklum möguleikum er kemur að samsetningu.

Velta Ollin Plastics í ár er áætluð um 20 milljónir dala eða um 2,7 milljarðar króna. Hjá félaginu starfa um 130 manns.

„Ég tel að með þessum kaupum geti Rotovia nýtt sér styrkleika Ollin Plastics til þess að ýta undir nýsköpun og vöxt í iðnaðinum. Kaupin á Ollin Plastics styðja mjög vel við langtímamarkmið félagsins og enn frekari vöxt í Norður-Ameríku, bæði á okkar eigin vörum og einnig í framleiðslu á vörum viðskiptavina okkar,“ segir Daði Valdimarsson, forstjóri Rotovia.

„Við erum mjög spennt að verða hluti af Rotovia og hlökkum til þeirra vaxtartækifæra sem þessi samruni skapar. Saman getum við náð miklum árangri og haldið áfram að skila miklu virði til viðskiptavina okkar,“ er haft eftir Carlos De Santiago, verksmiðjustjóra Ollin Plastics‏.

Rotovia framleiðir og hannar sínar eigin vörur undir vörumerkjunum Sæplast, Tempra, iTUB og VARIBOX ásamt því að framleiða ýmsa íhluti fyrir bílaframleiðendur, framleiðendur landbúnaðartækja, vindmylluframleiðendur og fleiri geira. Hjá Rotovia starfa um 850 starfsmenn í 11 verksmiðjum í 8 mismunandi löndum. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar á Dalvík.