Hagnaður kísilmálmverksmiðju Elkem á Íslandi nam 95,5 milljónum norskra króna á síðasta ári, sem nemur 1,2 milljörðum íslenskra króna.

Til samanburðar nam hagnaðurinn 246,6 milljónum norskra króna árið á undan, sem nemur 3,2 milljörðum króna. Hagnaðurinn var enn meiri á metárinu 2022 þegar hann nam um 15 milljörðum íslenskra króna.

Tekjur Elkem námu 2,3 milljörðum norskra króna, sem nemur 30 milljörðum íslenskra króna. Tekjurnar drógust saman tæplega 16% milli ára en þær höfðu dregist saman um svipað hlutfall árið áður.

Í skýrslu stjórnar segir að markaðsaðstæður hafi haldið áfram að veikjast á árinu 2024 þar sem heimsmarkaðsverð á kísiljárni lækkaði um 12% á milli ára. Þá hafi verið skerðingar á raforku vegna vatnsstöðu frá upphafi árs til miðs febrúar 2024 og frekari skerðingar boðaðar fyrir fyrsta ársfjórðung 2025. Hráefnaverð hafi haldist hátt mest allt árið en hafi farið hækkandi í byrjun árs 2025.

Eigið fé Elkem á Íslandi nam tæplega 2,7 milljörðum norskra króna í lok árs 2024, sem nemur um 32,5 milljörðum íslenskra króna. Stjórn félagsins leggur til að greiða út arð að upphæð 1 milljarð norskra króna til hluthafa á árinu 2025, sem nemur rúmum 12 milljörðum íslenskra króna.

Allt hlutafé félagsins var í eigu Elkem ASA, bæði í ársbyrjun og árslok 2024.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.