Michael O‘Leary, forstjóri Ryanair, segir að farþegar megi búast við hækkandi fargjöldum í sumar vegna seinkunar á afhendingu nýrra flugvéla frá Boeing. Tafirnar munu koma til með að takmarka flutningsgetu flugfélagsins.

Ryanair vonast til að fá einhverjar bætur vegna málsins en segist þó einbeita sér að því að fá flugvélarnar afhentar sem fyrst.

Forstjórinn sagði að afhending á 57 Boeing 737 Max 8200 vélum hafði verið væntanleg í mars, en flugfélagið býst nú við því að fá ekki nema 40-45 fyrir byrjun sumars. Boeing hefur verið undir ströngu eftirliti frá bandarískum flugmálayfirvöldum eftir atvikið með Alaska Airlines í janúar.

O‘Leary bætir við að kostnaðurinn sem myndi sparast vegna eldsneytiskaupa myndi þýða að hækkunin yrði ekki eins mikil og 17% hækkunin sem varð árið 2023.

„Ryanair er lággjaldaflugfélag og því eru hækkanir um 10% aðeins meiri en meðaltalshækkanir, sem eru um 3-7%, en það er vegna þess að við byrjum með hækkanirnar frá mjög lágum grunni,“ segir O‘Leary.