Samtök atvinnulífsins gagnrýna áform um innleiðingu stimpilklukku eða vinnutímaskráningar á alla vinnustaði landsins, óháð því hvort þörf sé á slíkri skráningu eða ekki. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um frumvarp um breytingar á lögum um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum.

Frumvarpinu er ætlað að tryggja að „Vinnueftirlit ríkisins eða eftir atvikum dómstólar geti metið hvort skilyrði laganna um hámarksvinnutíma og lágmarkshvíld og vikulegan frídag séu virt sem og hvort starfsfólk hafi fengið hvíld síðar ef vikið er frá reglum um hvíldartíma og vikulegan frídag samkvæmt lögunum eða kjarasamningum.“

Í umsögn SA segir að í reynd sé verið að þvinga vinnustaði til þess að taka upp stimpilklukkur óháð því hvort einhver ástæða sé til þess. Úrræðið sé bæði kostnaðarsamt og íþyngjandi.

Engin þörf á stimpilklukku fyrir marga vinnustaði

Í umsögn SA kemur fram að stór hluti launþega vinni reglubundinn vinnutíma, 7-8 klukkustundir á dag, séu ekki á vöktum, vinni ekki á kvöldin, nóttunni eða um helgar. Það sé því ónauðsynlegt og í öllu falli gengið fram úr hófi með því að krefja alla vinnustaði til þess að innleiða stimpilklukkur svo hægt sé að fylgjast með hvort reglum um hámarksvinnutíma og lágmarkshvíld sé fylgt.

„Reglubundinn vinnutími starfsfólks er einnig langt undir 48 klst. hámarksvinnutíma á viku skv. 55. gr. laganna. Vinnutími kemur fram í ráðningarsamningi og því óþarfi að skrá hann frá degi til dags. Það væri fullnægjandi að skrá eingöngu frávik ef einhver eru í stað þess að skrá daglega reglubundinn vinnudag. Frumvarpið býður ekki upp á þann valkost sem væri eðlilegt, ef meðalhófs væri gætt,“ segir í umsögn SA.

Þá benda samtökin á að sambærilegar reglur séu ekki við lýði í öðrum Norðurlöndum. Frumvarpið má rekja til nýja túlkun dómstóls ESB á ákveðnum þáttum er varða skipulag vinnutíma.