Samtök atvinnulífsins hafa sent frá sér svar við tilkynningu breiðfylkingar verkalýðsfélaga á almennum vinnumarkaði. Bendir SA á að launahækkanir í krónutölum séu líka hlutfallslegar launahækkanir þó þær séu mismiklar eftir hópum.
„Sagan sýnir okkur því miður með óyggjandi hætti að þær hlutfallslegu hækkanir sem eiga sér stað neðar í launastiganum skila sér upp stigann í formi launaskriðs þar sem fólk mun áfram krefjast umbunar fyrir aukna menntun, reynslu og ábyrgð. Þegar krónutölunálgun er höfð að leiðarljósi við gerð kjarasamninga eru kostnaðaráhrifin því oft vanmetin í upphafi,“ segir í tilkynningu SA.
Samtök atvinnulífsins og breiðfylking stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði hafi undanfarið unnið að því hörðum höndum í sameiginlegu átaki að skapa skilyrði fyrir langtíma kjarasamningum sem hafi það meginmarkmið að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Þannig geti verðbólga minnkað, unnt verði að lækka vexti og bæta þannig lífskjör almennings í landinu og rekstrarumhverfi fyrirtækja.
„Sameiginleg samningsmarkmið þeirra samninga sem unnið hefur verið að undanfarið, eru í samræmi við áherslur Samtaka atvinnulífsins og ályktanir opinna vinnufunda samtakanna, sem voru haldnir um allt land á liðnum haustmánuðum.
Samstarf SA og breiðfylkingarinnar hefur gengið vel og umtalsverður árangur náðst í að rýna þær áskoranir sem eru í veginum og stilla af mismunandi áherslur. Aðilar beggja megin borðs hafa orðið sammála um að forsenda fyrir því að markmið náist um nýja þjóðarsátt, sé að allir aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt og enginn skorist undan ábyrgð. Í því ljósi skoraði stjórn SA nýlega á aðildarfélög sín, önnur fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög að styðja við fyrrgreind markmið kjarasamninga, eins og þeim frekast er unnt, með því að halda aftur af verðhækkunum og launaskriði,“ segir í tilkynningu SA.
Að baki liggi mikil vinna og gagnkvæmur skilningur á sérstökum kröfum um hækkun lægstu launa, svokölluð „krónutöluhækkun“. Sú áhersla sé vel skiljanleg í samfélagi sem leggi áherslu á jöfnuð. Það liggi enda fyrir, að þau sem hafa lægstu launin þurfi einna mest á kjarasamningsbundnum launahækkunum að halda, sérstaklega þegar verðbólga sé mikil. Verðhækkanir á nauðsynjavörum og húsnæði vegi þyngra í útgjöldum launalægri hópa en launahærri hópa. Þeir séu líklegri til þess að fá greidd laun samkvæmt taxta, séu síður á markaðslaunum og njóti síður launaskriðs.
„Þó er rétt að undirstrika, að launahækkanir í krónutölum eru líka hlutfallslegar launahækkanir þó þær séu mismiklar eftir hópum. Sagan sýnir okkur því miður með óyggjandi hætti að þær hlutfallslegu hækkanir sem eiga sér stað neðar í launastiganum skila sér upp stigann í formi launaskriðs þar sem fólk mun áfram krefjast umbunar fyrir aukna menntun, reynslu og ábyrgð. Þegar krónutölunálgun er höfð að leiðarljósi við gerð kjarasamninga eru kostnaðaráhrifin því oft vanmetin í upphafi.
Þess vegna hafa Samtök atvinnulífsins lagt upp með aðferðafræði sem tekur mið af þessu, fer bil beggja og er líkleg til þess að geta staðið undir nafni sem ný þjóðarsátt; þar sem tekið er tillit til ólíkra hópa og ólíkra greina og þar sem efnahagslegum stöðugleika er ekki raskað, heldur þvert á móti byggt undir skilyrði til jafnvægis og eðlilegrar verðmætasköpunar.“
Samtök atvinnulífsins séu jafn sannfærð og áður um að samstaða muni skila hagfelldri niðurstöðu við samningaborðið og lýsa sig eindregið tilbúin til að ljúka gerð nýrra langtímasamninga á grundvelli þessarar vinnu. Allir muni þurfa að gefa eitthvað eftir, allir muni þurfa að leggja töluvert á sig, en niðurstaðan verði að vera í samræmi við efnahagslegan veruleika og getu þjóðarbúsins. „Við viljum öll efnahagslegan stöðugleika og geta gert framtíðaráætlanir sem standast,“ segir að lokum í tilkynningu SA.