Sæbýli, sem sérhæfir sig í rætkun og framleiðslu sæeyrna, hefur lokið 500 milljóna króna hlutafjáraukningu sem mun styðja við næstu skref í uppbyggingu ungviðaframleiðslu í Grindavík og áframeldisstöðvar félagsins í Auðlindagarðinum á Reykjanesi.
Ungviðin sem nú eru í framleiðslu munu standa undir allt að 200 tonna framleiðslu á sjálfbærum sæeyrum („abalone“), og undirbúningur er hafinn fyrir frekari stækkun í yfir 1.000 tonn.
„Eigendur hafa með þessari aukningu hlutafjár sýnt traust sitt á starfsfólki og þeim grunn innviðum sem byggðir hafa verið upp á undanförnum árum með kynbótum klakstofns og þróun SustaincycleTM eldiskerfisins. Á Reykjanesi eru einstakar aðstæður til hlýsjávareldis á þessari einna verðmætustu eldistegund í heimi. Það er líka jákvætt að þessi nýsköpun getur gefið af sér jákvæð efnahagsáhrif á þessu svæði,“ segir Sigurður Pétursson, stjórnarformaður Sæbýlis hf.
Tveir sprotasjóðir Eyris Invest áttu samtals um 42,9% hlut í Sæbýli í árslok 2023, samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins. Sæbýli lauk 374 milljóna króna hlutafjáraukningu, með þátttöku innlendra fjárfesta árið 2022.
Sæbýli segir að með hlutafjáraukningunni styrki Sæbýli stöðu sína sem leiðandi afl í sjálfbærri ræktun á sæeyrum. Félagið reki nú bæði ungviða- og áframeldisframleiðslu í Grindavík og hafi tryggt sér nauðsynlegan aðgang að aðstöðu og auðlindum til að styðja við umfangsmikla stækkun á næstu árum. Þau ungviði sem nú er verið að framleiða verða tilbúin til afurðasölu frá og með 2028.
Verkefnið byggi á aðgangi að heitum, hraunsíuðum borholusjó og jarðvarmaorku, þar sem náttúran og nýsköpun vinna saman að framleiðslu gæðaafurða fyrir alþjóðamarkað.
„Við erum afar þakklát fyrir traustið sem fjárfestar sýna verkefninu. Þetta markar stór tímamót þar sem við færumst úr þróunarfasa yfir í fullan framleiðslufasa. Framtíðin er björt, við erum með frábært starfsfólk sem hefur komið verkefninu á þennan sterka stað og nú förum við alla leið. Við sjáum nú ávexti margra ára vinnu í rannsóknum og uppbyggingu“ segir Vala Valþórsdóttir, forstjóri Sæbýlis hf.
Félagið segist hafa sérstöðu á alþjóðavísu með ræktun bæði japanskra Ezo og rauðra sæeyrna í lokuðu, stýrðu umhverfi með aðgengi að hreinum íslenskum náttúruauðlindum. Fyrirtækið leggi áherslu á hágæðaafurð fyrir kröfuharða markaði í Asíu og víðar.