Baridi Iceland hf., móðurfélag Baridi Group Ltd. sem á hátt í fimmtíu rannsóknarleyfi í Tansaníu, hefur lokið 7 milljóna dala hlutafjáraukningu, eða sem nemur 860 milljónum króna, í lokuðu útboði.

„Stjórnendur félagsins munu nýta hlutafjáraukninguna til að fjármagna framkvæmdir vegna fyrstu koparvinnslu félagsins í nágrenni við Dodoma, höfuðborg Tansaníu,“ segir í tilkynningu á vef Fossa fjárfestingarbanka sem var ráðgjafi Baridi og umsjónaraðili útboðsins.

Fjárfestahópurinn samanstendur af bæði íslenskum og erlendum einkafjárfestum. Skel fjárfestingarfélag, sem fjárfesti fyrst í Baridi í fyrra, tók þátt í hlutafjáraukningunni og á í dag 31,8% hlut.

Baridi Group var stofnað árið 2022 af Kristni Má Gunnarssyni og hefur félagið tryggt sér rannóknarleyfi á yfir 2.000 ferkílómetra svæði með aðgang að hráefnum eins og kopar, grafít, litíum og nikkel.

„Breytt lagaumhverfi sem auðveldar erlenda fjárfestingu hefur leitt til þess að Tansanía getur orðið lykilaðili í alþjóðlegum námuiðnaði. Framundan er mikil erlend fjárfesting og uppbygging innviða,“ segir í fjárfestakynningu sem Skel birti síðasta sumar.