Heildarfjöldi farþega Icelandair var um 200 þúsund í nýliðnum febrúarmánuði, samanborið við 125 þúsund í febrúar í fyrra. Sætaframboð í febrúar var 82% af framboðinu í febrúar 2019.

Sætanýting í millilandaflugi var 76,4% og jókst um 10,2 prósentustig á milli ára. Sætanýting í febrúarmánuði hefur ekki verið meiri hjá Icelandair frá árinu 2016, að því er segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

„Það er ánægjulegt að sjá áframhaldandi fjölgun farþega. Eftirspurnin er sterk sem endurspeglast í farþegafjölda, sætanýtingu og heildartekjumyndun í mánuðinum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Farþegar í millilandaflugi voru 181 þúsund, 66% fleiri en í febrúar 2022 þegar 109 þúsund millilandafarþegar flugu með félaginu. Fjöldi farþega til Íslands var 95 þúsund og frá Íslandi 45 þúsund. Tengifarþegar voru um 40 þúsund og þrefaldaðist fjöldi þeirra á milli ára. Stundvísi í millilandaflugi var 74%.

„Slæmt veður í febrúar hafði nokkur áhrif á stundvísi og farþegafjölda en framleiðsla í mánuðinum var 5% minni vegna aflýsinga,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Fjöldi farþega í innanlandsflugi var um 19 þúsund, samanborið við 16 þúsund í febrúar í fyrra. Stundvísi var 70%. Sætanýting í innanlandsflugi var 78,9%. Flugfélagið segir að nokkrar raskanir hafa orðið á innanlandsflugi í febrúar sem hafði áhrif á stundvísi og farþegafjölda.

Fraktflutningar jukust um 36% á milli ára

Seldir blokktímar í leiguflugi voru 8% færri en í febrúar í fyrra. Fraktflutningar jukust um 36% miðað við sama tíma í fyrra. Aukningin í fraktflutningum skýrist fyrst og fremst af því að félagið bætti breiðþotu við fraktflotann sem eykur fraktrými.

„Áframhaldandi vöxtur í fraktflutningum skýrist af því að í lok síðasta árs tókum við í notkun Boeing 767 fraktflugvél og jukum flutningsgetuna þannig umtalsvert. Viðskiptavinir hafa tekið þessu aukna framboði vel og það er ljóst að mikil tækifæri liggja í því að nýta Keflavíkurflugvöll sem tengimiðstöð fyrir fraktflutninga,“ segir Bogi.