Icelandair flutti 282 þúsund farþega í nóvember, 13% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Sætanýting var 75,4% í nóvember síðastliðnum og var því um 1,9 prósentustigi meiri en á sama tíma í fyrra. Stundvísi var 84,5% á fjórðungnum.

Icelandair flutti 282 þúsund farþega í nóvember, 13% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Sætanýting var 75,4% í nóvember síðastliðnum og var því um 1,9 prósentustigi meiri en á sama tíma í fyrra. Stundvísi var 84,5% á fjórðungnum.

Í tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar segir að farþegum félagsins hafi fjölgað mest, eða um 37%, á N-Atlantshafsmarkaðnum um Ísland. Það sem af er ári hefur félagið flutt fjórar milljónir farþega, 17% fleiri en á sama tímabili í fyrra.

Sætanýting og fjöldi farþega hjá Icelandair á síðustu mánuðum. Mynd tekin úr tilkynningu flugfélagsins.

Af farþegum nóvembermánaðar voru 36% á leið til Íslands, 16% frá Íslandi, 40% ferðuðust um Ísland á leið sinni milli Evrópu og Norður-Ameríku og 8% ferðuðust innan Íslands.

„Í nóvember hélt farþegum áfram að fjölga og sætanýting var betri en í fyrra. Flugframboðið jókst um 12% frá fyrra ári. Þessi árangur náðist þrátt neikvæð áhrif sem umfjöllun erlendra fjölmiðla um jarðhræringarnar á Reykjanesi hafði á bókunarflæðið. Einhverra áhrifa þessa gætir enn til skemmri tíma á bókanir og tekjur en til lengri tíma er bókunarflæðið að færast í fyrra horf,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Icelandair tilkynnti fyrir tveimur vikum að verulega hefði hægst á sölu á flugferðum til Íslands næstu vikurnar miðað við það sem áður var áætlað en áhrifin voru rakin til umfjöllun erlendra miðla um jarðhræringa á Reykjanesi. Icelandair tók afkomuspá sína fyrir árið 2023 úr gildi en gerir þó áfram ráð fyrir hagnaði eftir skatta í ár.