Tvær vikur eru liðnar frá því að kynntar voru tillögur viðræðunefndar fjármálaráðherra og ráðgjafa lífeyrissjóða um uppgjör HFF-bréfa sem er ætlað að greiða fyrir slitum ÍL-sjóðs, gamla Íbúðalánasjóðs. Þörf er á samþykki 75% kröfuhafa á fundi skuldabréfaeigenda 10. apríl svo tillagan hljóti brautargengi.
Í tillögunum felst að kröfur samkvæmt HFF-bréfum, sem metnar eru á 651 milljarð króna, verði efndar með því að ÍL-sjóður og íslenska ríkið afhendi til uppgjörs ný ríkisskuldabréf að andvirði 540 milljarðar króna, önnur verðbréf í eigu ÍL-sjóðs að andvirði 38 milljarðar, og 73 milljarða króna í reiðufé, þar af evrur að andvirði 55 milljarðar króna.
Álagið helsta álitaefnið
HFF-bréfin, sem einnig kallast Íbúðabréf, eru ríkistryggð skuldabréf útgefin af ÍL-sjóði. Eitt helsta álitaefnið við tillöguna snýr að forsendu um verðlagningu HFF-bréfanna með 32 punkta álagi ofan á brúaðan vaxtaferil ríkisskuldabréfa, samkvæmt heimildarmönnum Viðskiptablaðsins.
Brúaður vaxtaferill ríkisskuldabréfa er reiknuð ávöxtunarkrafa fyrir mismunandi tímalengdir sem fengin er með stærðfræðilegri brúun milli bréfa með ólíka gjalddaga.
Einn viðmælandi blaðsins sem starfar hjá lífeyrissjóði nefnir að lítið sem ekkert álag hafi verið á Íbúðabréfin þangað til að stjórn Íbúðalánasjóðs ákvað í árslok 2019 að segja upp samningi um viðskiptavakt með HFF-bréfin. Eftir að hætt var með vakt á bréfunum myndaðist seljanleikaálag ofan á bréfin.
Markaðurinn með HFF-bréfin hefur hins vegar verið nær óvirkur og álagið hækkað eftir að Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, kynnti hugmyndir um slit og uppgjör ÍL-sjóðs í október 2022. Umrætt álag var um 200 punktar einum mánuði eftir kynningu Bjarna.
Sjóðirnir hafa því verið að bera hið fyrirliggjandi álag samkvæmt tillögunni við hvernig álagið á markaðnum hafði þróast fyrir kynningu fyrrum fjármálaráðherra í október 2022.
Meðalálag á HFF 34 bréfin miðað við ríkisferilinn tvö ár aftur í tímann fyrir kynningu Bjarna var 31 punktur, en ef aðeins er horft eitt ár aftur tímann var meðalálagið 22 punktar. Í tilviki HFF 44 var álagið yfir þetta tveggja ára tímabil á bilinu 21-27 punktar.
Fréttin er hluti af lengri umfjöllun um málið í Viðskiptablaði vikunnar. Þar má nálgast svör allra lífeyrissjóða við fyrirspurn Viðskiptablaðsins um hvort þeir hafi mótað afstöðu til tillögunnar.