Úkraínski grínistinn Vasyl ByDuck hélt uppistandssýningu á úkraínsku í gærkvöldi í kjallararými Dubliner í Reykjavík. Sýningin var haldin fyrir Úkraínubúa sem búsettir eru á Íslandi og rann allur ágóði miðasölunnar til úkraínska hersins.
Sýningin er hluti af uppistandsferðalagi Vasyl en hann ferðast nú um 28 mismunandi borgir í Evrópu og var sýningin í Reykjavík sú sautjánda sem hann hélt.
Allur ágóði miðasölunnar rennur beint til úkraínska hersins og að sögn skipuleggjanda sýningarinnar náði Vasyl að safna rúmlega hálfri milljón í gærkvöldi. Uppselt var á sýninguna og borguðu rúmlega 110 gestir fimm þúsund krónur hver fyrir aðgangseyri.
„Ég verð bara með þessa einu sýningu í Reykjavík og fer svo beint úr landi um miðnætti. Þetta er allt skipulagt af mér og konu minni og svo rennur allur ágóðinn til úkraínska hersins svo hann geti fjármagnað kaup á vopnum, skotheldum vestum og fleira. Við erum þakklát fyrir alla aðstoð sem við fáum en því miður þá kemur áhrifaríkasta hjálpin í formi vopna.“

Vasyl hefur áður heimsótt Ísland en hann hélt uppistandssýningu á Gauknum árið 2018, nokkrum árum fyrir stríð. Hann segist elska Ísland og lítur á það sem annað heimili sitt utan Úkraínu.
„Ég elska Ísland meira en nokkur önnur þjóð utan Úkraínu en ég verð líka svo sorgmæddur þegar ég kem hingað og sé alla þessa fallegu fossa og firði og ber það svo saman við það sem er að gerast í mínu landi. Mágkona mín sagði mér til dæmis frá því í vikunni að Rússar sprengdu hverfið okkar og að nokkrar eldflaugar höfðu lent rétt hjá íbúðinni okkar.“
Eggert Smári Sigurðsson, eigandi Comedy in Iceland og skipuleggjandi sýningarinnar, segist aldrei hafa upplifað aðra eins eftirspurn en hann þurfti að loka fyrir miðasölu þegar ljóst var að færri myndu komast að en vildu.
„Á ákveðnum tímapunkti var verið að selja svo mikið af miðum að vefsíðan okkar bara hrundi. Ég veit ekki hvort það var vegna netárása Rússa eða hvað en svo fór síðan aftur í loftið eftir sólarhring. Svo héldu fyrirspurnir áfram að berast eftir að við lokuðum fyrir miðasölu frá fólki sem biðlaði til okkar að selja þeim miða.“
Að hans sögn gekk sýningin vonum framar en Vasyl er mjög frægur í sínu heimalandi eftir margra ára uppistandsferil. Hann hefur þó undanfarin misseri einnig ferðast til fremstu víglína og haldið sýningar fyrir hermenn í skotgröfum Donbass.
„Ég hef gert margar sýningar fyrir úkraínska herinn í skotgröfunum og meira að segja á meðan stórkotaliðsárásir óvina heyrðust allt um kring. Það voru hins vegar bestu sýningar sem ég hef gert. Það var ekki mikið hlegið en ég fann svo mikið fyrir tilfinningum allra í kringum mig. Það er svo frábær tilfinning að láta fólk, sem er stanslaust í nánd við hræðslu og dauðann, hlæja og brosa í smá stund.“