Bandarískir og kínverskir fulltrúar tókust á í dag á fögnuði sem haldinn var af bandaríska viðskiptaráðinu í Shanghai. Viðskiptaráðið hélt viðburðinn til að draga úr óvissu meðal bandarískra fyrirtækja sem starfa í Kína.

Á vef Reuters segir að Scott Walker, aðalræðismaður bandarísku ræðismannaskrifstofunnar í Shanghai, hafi sagt að efnahagssamband Bandaríkjanna og Kína hafi verið ójafnt og ógagnsætt í of langan tíma.

„Við viljum að mismunun og hefnd gegn bandarískum fyrirtækjum í Kína hætti,“ sagði Scott á 110 ára afmæli bandaríska viðskiptaráðsins í Shanghai.

Chen Jing, embættismaður kommúnistaflokksins í Shanghai, hélt ræðu í kjölfarið þar sem hann mótmælti ræðu Walker. „Ég tel að skoðun aðalræðismannsins sé fordómafull, illa grunduð og ekki í samræmi við símtalið sem þjóðarleiðtogar okkar áttu í gærkvöldi.“

Hann var þar að vitna í símtal Donalds Trumps og Xi Jinpings sem var lengi beðið eftir. Þar ræddu leiðtogarnir viðskipti og önnur málefni eftir fleiri vikna deilur. Símtalinu lauk með samþykki um að halda áfram með viðræður.