Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt Kína harkalega á samfélagsmiðlum og gaf í skyn að þjóðin hefði brotið gegn skilmálum nýs viðskiptasamkomulags. Á vef WSJ segir að forsetinn hafi þó ekki tilgreint hvernig Kínverjar hefðu brotið gegn samningnum.
Samkvæmt samningnum ætluðu Kínverjar að lækka tolla sína á innfluttar bandarískar vörur frá 125% niður í 10% ásamt því að fresta öðrum efnahagslegum hefndaraðgerðum.
„Ég gerði SKJÓTAN SAMNING við Kína til að bjarga þeim úr því sem ég taldi vera mjög slæma stöðu fyrir þá og ég vildi ekki sjá stöðuna verða að veruleika. Þessi samningur kom öllu fljótlega í jafnvægi og Kína fór aftur á venjulegan farveg. Kína, sem er kannski ekki óvænt fyrir suma, HEFUR ALGERLEGA BROTIÐ GEGN SAMNINGNUM OKKAR. Þetta sýnir hvað gerist þegar maður er Mr. NICE GUY,“ skrifaði Trump á Truth Social.