Sala er nú hafin á 18 nýjum lóðum fyrir neðan Hvalfjarðarveg í landi Eyrar í Kjós. Lóðirnar eru ætlaðar heilsárshúsum en verkefnið verður í tveimur áföngum og gerir deiliskipulagið ráð fyrir 48 lóðum í heildina.
Af þeim 18 lóðum sem eru fyrir neðan Hvalfjarðarveg eru sex þeirra sjávarlóðir. Lóðirnar fyrir ofan aðalveg verða síðan boðnar til sölu árið 2026.
Landeigendur á Eyri í Kjós eru hjónin Sverrir Pétursson og Ólöf Birna Garðarsdóttir. Jörðin var áður í eigu móðurfjölskyldu Sverris en hann hefur verið þar í sveit á sumrin frá sex ára aldri og segist þekkja hverja þúfu og hól.
Ólöf og Sverrir, sem hafa verið landeigendur í nokkur ár, segja í samtali við Viðskiptablaðið að þegar hugmyndin kviknaði um að skipuleggja hluta jarðarinnar fyrir dreifða byggð hafi þau strax ákveðið að nálgast verkefnið frá þeirri hlið að umhverfið og nágrannasvæðið yrði fyrir sem minnstu raski og hófst svo verkefnið um mitt árið 2023.
„Það er nú búið að samþykkja deiluskipulag fyrir 48 lóðir og er fyrri áfangi að fara í sölu núna. Við gerum svo ráð fyrir að vegagerð, rafmagn og lagnir klárist í sumar en þessar 18 lóðir eru þegar komnar með götuheiti og lóðanúmer,“ segir Ólöf.
Nokkuð er liðið síðan búskapur var á bænum en þar var áður stundaður kúa-, hænsna- og fjárbúskapur frá fyrri hluta síðustu aldar.
„Það var dálítið sérstök tilfinning fyrir okkur að eignast jörðina á Eyri. Stórfjölskyldunni þykir afar vænt um hana og allt sem henni fylgir og hefur fjölskyldan byggt þar upp sumarbústaðasvæði þar sem mikið líf er sérstaklega yfir sumartímann. Þegar við vorum að láta okkur dreyma um hvað við gætum gert við þetta dýrmæta land vorum við ákveðin í því að nálgast verkefnið af virðingu, ekki bara við nágrennið heldur einnig við umhverfið.“
Þau segjast hafa gert sér grein fyrir því að ef það ætti að skipuleggja þennan fjölda íbúðarlóða þá væri mikilvægt að halda ákveðnu yfirbragði látleysis og að láta bæinn ekki taka yfir eins og hvern annan þéttbýliskjarna.

„Við leituðum fljótlega til KRADS arkitekta og fundum að þar var þekking og fagmennska sem var í takt við okkar drauma. Þeirra hugmyndir með að hafa lóðirnar hringlaga gerðu það að verkum að við gátum séð fyrir okkur uppbyggingu flæðandi samfélags þar sem íbúar koma til með að móta sameiginleg svæði í landinu og finna sig sem hluta af nýrri byggð.“
Þau segja jafnframt að bæjarstæðið á Eyri hafi þegar fengið upplyftingu og að ferðaþjónusta muni opna þar í sumar.
Ólöf bætir við að þrátt fyrir að vera í stuttri fjarlægð frá borginni þá líði henni eins og hún sé í sveit. Hún er sjálf með vinnustofu á svæðinu og segir að þegar beygjan er tekin inn í Hvalfjörðinn þá hægist strax á öllu kerfi líkamans.
„Er það von okkar að það líf sem sú starfsemi mun leiða af sér muni koma samfélaginu í Kjós til góða þegar farið verður af stað með ýmiss konar viðburði sem greint verður frá síðar, hugmyndirnar eru endalausar!“