Tesla á Íslandi seldi rafbíla fyrir 4,5 milljarða króna á árinu 2024 samanborið við 25,1 milljarðs króna sölu á árinu 2023. Það samsvarar tæplega 82% samdrætti milli ára en þess má geta að árið 2023 var metár hjá Tesla á íslandi.

Breytingar stjórnvalda höfðu áhrif

Alls voru 574 Tesla bifreiðar nýskráðar hér á landi í fyrra samanborið við 3.575 bíla árið 2023, sem er um 84% fækkun milli ára.

„Fyrirtækið gerir ráð fyrir að afhendingar aukist árið 2025 miðað við 600 afhendingar fyrra ár. Efnahagskreppa sem rekja mátti til eldgosa hafði áhrif á árið 2024,“ segir í skýrslu stjórnar í ársreikningi Tesla Motors Iceland ehf.

„Í kjölfarið felldu stjórnvöld niður rafbílaívilnun í formi virðisaukaskattsfrelsis fyrir bíla undir 5,5 milljónum króna og lögðu á nýjan skatt, 6 krónur á hvern ekinn kílómetra, sem gerði rafbíla dýrari í kaupi og rekstri. Árið 2025, með hækkandi sköttum á jarðefnaeldsneyti, hafa rafbílar aftur orðið meira aðlaðandi valkostur.“

Það sem af er ári hafa 475 Tesla bifreiðar verið nýskráðar á Íslandi samkvæmt gögnum Samgöngustofu.

Tesla á íslandi hagnaðist um 82 milljónir króna eftir skatta í fyrra, samanborið við 292 milljónir árið 2023.