Útflutningstekjur iðnaðar námu 698 milljörðum króna í fyrra sem er 38% af heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins. Til samanburðar námu útflutningstekjur ferðaþjónustunnar á síðasta ári 598 milljörðum króna (32%) og sjávarútvegs 352 milljörðum króna (19%). Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI) þar sem bent er á að iðnaður sé stærsta útflutningsgrein hagkerfisins og því skipti þjóðarbúið miklu með hvaða hætti greinin þróast.

Samkvæmt greiningu SI voru fluttar út iðnaðarvörur fyrir 504 milljarða á síðasta ári, auk þess sem þjónustuútflutningur iðnaðar nam 194 milljörðum. Með vexti hugverkaiðnaðar á síðustu árum hafi hluti þjónustu í heildarútflutningi iðnaðar farið vaxandi, en innan hugverkaiðnaðar sé bæði vöru- og þjónustuútflutningur. Nam hluti þjónustu í útflutningi iðnaðar 28% árið 2023 samanborið við 14% árið 2013. Í þessu ljósi sé mikilvægara nú en áður að horfa til heildarumfangs útflutningstekna iðnaðar en ekki einungis útflutnings iðnaðarvara þegar þróun og vægi útflutnings greinarinnar er metið ásamt áhrifum þess á hagkerfið.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta nálgast fréttina í heild hér.