Samþykkt var á aðalfundi SIV eignastýringar og ÍV sjóða 31. mars síðastliðinn að sameina starfsemi félaganna undir merkjum Íslenskra verðbréfa hf. Með samrunanum verður til eigna- og sjóðastýringarfélag með um 200 milljarða króna í stýringu og fimmtán manna teymi.
Framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa er Arnór Gunnarsson, sem stýrði SIV eignastýringu. Forstöðumaður sjóðastýringar er Þorkell Magnússon og Jón Helgi Pétursson, sem stýrði ÍV sjóðum, er rekstrarstjóri félagsins.
Íslensk verðbréf hf. eru í dag eitt dótturfélaga Skaga hf. ásamt VÍS tryggingum hf. og Fossum fjárfestingarbanka hf. Íslensk verðbréf eru með starfsstöðvar bæði í Reykjavík og á Akureyri.
VÍS stofnaði SIV haustið 2022. Skagi, móðurfélag VÍS og Fossa, keypti Íslensk verðbréf í maí 2024 og í kjölfarið var stefnt að því að sameina SIV eignastýringu og ÍV sjóði undir nafni Íslenskra verðbréfa.
Samtals reka Íslensk verðbréf 18 verðbréfasjóði og sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta. Auk hefðbundinna opinna sjóða rekur félagið jafnframt lokaðar afurðir fyrir fagfjárfesta á borð við kreditsjóði en slíkir sjóðir taka við fjármagni frá fjárfestum og lána til fyrirtækja.
Eignastýringarsvið félagsins stýrir sérgreindum eignasöfnum fyrir fagfjárfesta og stofnanafjárfesta en stærsta safn í stýringu félagsins er fjárfestingasafn VÍS trygginga.
„Uppbygging á eigna- og sjóðastýringarstarfsemi samstæðu Skaga er nú komið í það horf að hægt er að sækja fram af fullum krafti undir merkjum Íslenskra verðbréfa,“ segir Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.
„Við byggjum starfsemina á traustum grunni, erum með þekkt vörumerki, öflugt teymi og nýjar stoðir til að tryggja betri þjónustu og þróa vöruframboð í takti við þarfir og væntingar viðskiptavina hverju sinni. Lykillinn að því er fjölbreyttur hópur sérfræðinga með mikla reynslu af eigna- og sjóðastýringu, öflug stoðþjónusta og fjölbreytt sjóðaframboð sem mun höfða vel til viðskiptavina.“