Ferðaskrifstofa Akureyrar og VITA Sport hafa sameinast undir nafninu Verdi. Hið nýja fyrirtæki mun hafa tvær starfsstöðvar, bæði í miðbæ Akureyrar og á höfuðborgarsvæðinu. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.
Ferðaskrifstofa Akureyrar var stofnuð árið 1947 og hefur annast skipulagningu ferðalaga jafnt innan lands sem utan. Ferðaskrifstofan hefur verið sú eina utan höfuðborgarsvæðisins með svokallað IATA ferðaskrifstofuleyfi, sem veitir aðgang að bókunum og útgáfu farmiða hjá flugfélögum um allan heim.
VITA Sport hefur skipulagt íþróttaferðir á vegum ferðaskrifstofunnar VITA, sem stofnuð var árið 2008 og rekin af FERIA, dótturfélagi Icelandair Group.
„Við sameiningu sjáum við fyrir okkur að úr verði sterkt vörumerki, byggt á mjög hæfu og reynslumiklu starfsfólki í ferðabransanum,“ segir Lúðvík Arnarson, framkvæmdastjóri Verdi.
„Bæði fyrirtækin voru á ákveðnum tímamótum, ekki síst með tilliti til tæknilegra þátta eins og bókunarkerfis. Fyrirtækin hafa unnið náið saman í gegnum tíðina og það er góð reynsla af samstarfinu. Þegar hugmyndin kom upp, var báðum aðilum ljóst að til framtíðar væru mikil samlegðaráhrif af því að sameinast og búa til nýtt vörumerki og eitt félag úr þessum tveimur fyrirtækjum.“
Boðið verður upp á pakkaferðir frá Akureyrarflugvelli og Keflavíkurflugvelli, bæði sólarlandaferðir og borgarferðir. Þá mun Verdi verða áberandi í íþróttaferðum og bjóða ferðir á leiki í enska boltanum, á HM í hestaíþróttum og handbolta, Gothia Cup, Partille Cup og fleira.
„Við munum að sjálfsögðu halda áfram að þjónusta okkar tryggustu hópa; árshátíðarhópa, saumaklúbba, vinnustaði og íþróttahópa,“ segir Ragnheiður Jakobsdóttir, fjármálastjóri Verdi.
„Til að byrja með er markmið Verdi að verða sterkt vörumerki á ferðaskrifstofumarkaði á Íslandi. Með sameiningu munu hins vegar opnast möguleikar á enn frekari sókn til fleiri hópa en verið hefur. Framtíðin er því björt.“