Stjórnir Sparisjóðs Höfðhverfinga hf. og Sparisjóðs Strandamanna hf. hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sparisjóði Höfðhverfinga en þar segir að ef viðræðurnar leiði til sameiningar sjóðanna „verður til öflugur sparisjóður sem mun áfram styðja vel við einstaklinga og fyrirtæki á sínum starfssvæðum sem eru aðallega í Eyjafirði og á Ströndum, jafnframt því að sækja á nýja markaði.“

„Fjárhagsstaða hvors sjóðs um sig er sterk, báðir sjóðirnir hafa góð eiginfjárhlutföll sem og góða lausafjárstöðu. Sameiningu sjóðanna er fyrst og fremst ætlað að hefja markaðssókn með stækkun efnahagsreikningsins,“ segir í tilkynningu.

Gangi sameiningin eftir mun KEA strax í kjölfar sameiningarinnar leggja sjóðnum til aukið hlutafé til fyrsta áfanga í vexti sameinaðs sjóðs sem og að leggja til enn meira hlutafé síðar til frekari vaxtar skapist þær aðstæður.

Þannig verður til strax í kjölfar sameiningar mjög öflugur og vel fjármagnaður sparisjóður, segir í tilkynningu.

Jóhann Ingólfsson formaður stjórnar Sparisjóðs Höfðhverfinga fagnar þessu skrefi sjóðanna sem eru minnstu sparisjóðirnir í dag en saman gætu þeir myndað sterkan grunn til vaxtar.

„Mikilvægt sé að stækka og efla sparisjóðina til þess að mæta sterkar inn á bankamarkaðinn og viðhalda eðlilegri flóru fyrirtækja á þessum markaði. Við teljum góðan hljómgrunn í samfélaginu fyrir vexti sparisjóðanna, það sýna viðhorfskannanir sem við höfum látið gera. Vonandi verði þetta upphafið að frekari sameiningum eða stækkunum sparisjóðanna í heild sinni því þeir munu verða til framtíðar áhugaverður og öðruvísi valkostur fyrir fólk og fyrirtæki á bankamarkaði,“ segir Jóhann.

Víðir Álfgeir Sigurðarson, formaður stjórnar Sparisjóðs Strandamanna, segir að tækifæri séu í sameiningu sjóðanna, nauðsynlegt sé að þróa áfram og auka samstarf sparisjóðanna með hagsmuni eigenda og samfélagsins sem þeir vaxa upp úr að leiðarljósi.

„Stórauknar kröfur um regluverk og eftirlitsumhverfi, þrátt fyrir smæð og einfaldan rekstur sjóðanna, eru að gera rekstrarumhverfi þeirra flóknara. Áfram verður unnið að auknu samstarfi sparisjóða í gegnum Samband Íslenskra Sparisjóða. Vonir standa til að með sameiningu verði til öflugur sparisjóður með dreifðu eignarhaldi, sem styður vel við nærsamfélagið og byggir áfram á þeirri hugmyndafræði sem sparisjóðirnir hafa alltaf staðið fyrir frá því þeir voru stofnaðir fyrir rúmlega 130 árum,“ segir Víðir.