Þingflokkur Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hafa staðið í deilum varðandi fundarherbergi á Alþingi. Samfylkingin hafði falast eftir því að fá herbergið sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið með í 84 ár.
Fyrir tveimur vikum úrskurðaði Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, í málinu með vísan í reglur forsætisnefndar. Var niðurstaðan sú að Sjálfstæðisflokkurinn héldi þingflokksherbergi sínu.
Áður en þetta varð ljóst hafði Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, ýjað að því að þingflokkurinn færi í setuverkfall fengi Samfylkingin herbergið.
Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn sent frá sér tilkynningu þar sem segir að á fundi forsætisnefndar Alþingis í dag hafi forseti Alþingis knúið fram breytingu á núgildandi reglum er varða úthlutun þingflokksherbergja.
„Augljóst er að breyttar reglur munu hvorki standast tímans tönn né einhvers konar breytingar á ríkisstjórn annað en þær reglur sem í gildi voru sem höfðu það að markmiði að koma í veg fyrir óþarfa rask og deilur innan þingsins. Nýjar reglur hafa engin slík sjónarmið að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu Sjálfstæðisflokksins.
„Með eindæmum lítilmannlegt"
Haft er eftir Hildi að það hafi því miður sýnt sig að Samfylkingunni sé í hinum ýmsu málum ekki mjög umhugað um reglur og hefðir á Alþingi.
„Reglur um þingflokksherbergi voru skýrar enda úrskurðaði skrifstofustjóri Alþingis að samkvæmt þeim ætti Sjálfstæðisflokkurinn að halda herbergi því sem hann hefur verið í síðan 1941,“ segir Hildur.
„Þá bregst Samfylkingin við í krafti nýfengins meirihlutavalds síns og breytir með einu óvönduðu pennastriki reglunum til þess eins að taka herbergi Sjálfstæðisflokksins. Mér þykir þetta í raun með eindæmum lítilmannlegt en Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að eyða meiri tíma í þetta mál og þau þurfa að eiga við sig að hafa ákveðið að forgangsraða kröftum sínum og athygli á fyrstu dögum þingsins í að hafa af okkur þetta herbergi.
„Sjálfstæðisflokkurinn getur að sjálfsögðu unnið í öllum rýmum hússins að því aðhaldi sem nauðsynlegt er gagnvart nýrri ríkisstjórn. Við bara kveðjum því herbergið okkar í bili og óskum þeim velfarnaðar þar sem hefur verið góður andi í 84 ár og við vonum að bláu veggirnir verði þeim gæfuríkt leiðarljós í sínum störfum,“ segir Hildur.
![Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins gaf þingflokki Samfylkingarinnar handgert konfekt og blá hvalaskál.](http://vb.overcastcdn.com/images/141320.width-800.jpg)
Í tilkynningu Sjálfstæðisflokksins segir að flokkurinn kveðji nú þingflokksherbergið sem hann hafi verið í alla tíð og er Samfylkingunni óskað velfarnaðar í þessu sögufræga rými og skilur eftir smávegis innflutningsgjöf í tilefni tímamótanna. Gjöfin er handgert konfekt úr Vínberinu og lítil blá hvalaskál úr Rammagerðinni.