Væri kosið nú til Alþingis yrðiSamfylkingin næst stærsti flokkurinn með 21,1% fylgi og 15 menn kjörna. Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup.
Samfylkingin hefur ekki mælst svo sterk í könnun í 10ár.
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 24,1% og 16 menn kjörna. Er það áþekkar tölur og flokkurinn fékk í síðustu alþingiskosningum.
Framsóknarflokkurinn missi mikið fylgi samkvæmt könnuninni. Hann fengi 12,2% samkvæmt könnuninni en fékk 17,3% í síðustu kosningum.
Píratar eru jafnir Framsókn samkvæmt könnuninni en fengu 8,6% í kosningunum í fyrra.