Ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag myndi núverandi meirihluti Reykjavíkurborgar rétt svo halda velli miðað við nýja könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið sem framkvæmd var í maí. Borgarstjórnarkosningar fara næst fram vorið 2026.
Samfylkingin, Píratar, Sósíalistaflokkurinn, Vinstri græn og Flokkur fólksins mynduðu nýjan meirihluta í borginni í febrúar eftir að Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri, sleit meirihlutasamstarfi Framsóknarflokksins, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.
Samanlagt var fyrri meirihlutinn með 13 borgarfulltrúa en nýi meirihlutinn, sem kenndur hefur verið við kryddpíurnar, er með 12 borgarfulltrúa, sem er lágmark til að mynda meirihluta.
Samkvæmt könnuninni nær nýi meirihlutinn að halda þeim fjölda en til samanburðar myndi Sjálfstæðisflokkurinn einn og sér fá 8 borgarfulltrúa kjörna.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu, sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.