Samhentir Kassagerð hf., stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki landsins, hefur náð samkomulagi um kaup á Plastco ehf. Samrunatilkynningu þess efnis hefur verið skilað inn til Samkeppniseftirlitsins.

„Kaupin á Plastco eru mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Samhentra og styrkja þau enn frekar stöðu félagsins á markaði og styðja við vaxtaráform félagsins á komandi árum,“ segir í tilkynningu Samhentra.

Þetta eru önnur kaup Samhentra á undanförnu eina og hálfa ári en félagið gekk í fyrra frá kaupum á Formar ehf. sem framleiðir frauðplastkassa til notkunar í matvælaframleiðslu, auk einangrunarplasts. Formar var stofnað utan um reksturinn á frauð­plast­deild Borgar­plasts að Ás­brú í Reykja­nes­bæ eftir söluna á hverfi­s­teypu­verk­smiðju til Um­búða­miðlunar.

Plastco ehf., sem var stofnað árið 1988, sérhæfir sig í hönnun, sölu og þjónustu á vélbúnaði til pökkunnar þar sem áhersla er lögð á sjálfvirknivæðingu, gæði og skilvirkni. Félagið er í 97,8% eigu Benedikts Stefánssonar og Stefáns Þórs Benediktssonar, samkvæmt fyrirtækjaská Skattsins.

Plastco velti tæplega 1,7 milljörðum króna og hagnaðist um 95 milljónir árið 2023. Eignir félagsins námu 571 milljón og eigið fé var um 222 milljónir í árslok 2023.

„Eftir að hafa byggt upp og rekið Plastco ásamt fjölskyldu minni og traustu starfsfólki, sl. 37 ár, er það mér mikið gleðiefni að félagið verði nú hluti af stóru leiðandi fyrirtæki á sviði umbúðalausna á Íslandi, og það er mín trú að þar muni Plastco geta vaxið enn frekar og dafnað til allrar framtíðar,“ segir Benedikt Stefánsson, stofnandi og stærsti eigandi Plastco.

Þeir starfsmenn Plastco sem byggt hafa upp starfsemi félagsins síðastliðin 15 ár munu allir halda áfram störfum hjá félaginu.

Samhentir Kassagerð hf. stunda innflutning og sölu á umbúðum, rekstrarvörum og pökkunarvélum fyrir sjávarútveg. iðnaðarframleiðendur, heildsala og endursöluaðila. Innan samstæðunnar eru dótturfélögin Vörumerking ehf., Vörumiðar ehf., Kassahraun ehf. og ForPacking í Litháen. Auk þess á félagið helmingshlut í Tri-Pack Plastics í Bretlandi.

Samstæða Samhentra velti 6,6 milljörðum króna og hagnaðist um 287 milljónir króna árið 2023, samkvæmt síðasta birta ársreikningi. Eignir samstæðunnar voru bókfærðar á 5,2 milljarða króna og eigið fé var um 1,1 milljarður.

„Við erum mjög ánægð með kaupin á Plastco, erum bjartsýn á framtíð Samhentra og stefnum að því að veita áfram bestu umbúðarlausnir fyrir íslenska markaðinn. Líkt og með kaupunum á Formar, þá gera kaupin á Plastco okkur kleift að veita breiðara vöru- og þjónustuúrval til viðskiptavina okkar og þannig veita þeim þær heildarlausnir sem þeir þurfa,“ segir Jóhann Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Samhentra.

Samhentir Kassagerð eru beint og óbeint í 52,5% eigu Innís ehf., og 47,5% eigu Álfakórs ehf. Umrædd félög, sem áttu áður 50% hlut í Samhentum, juku við eignarhlut sinn í fyrra með kaupum á hlut Ásgeirs Þorvarðarsonar og Bjarna Hrafnssonar, eins stofnenda fyrirtækisins.

Inn­ís er meðal annars í eigu Jóhanns Odd­geirs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Sam­hentra Kassa­gerða. Álfa­kór er í eigu Birnu Lofts­dóttur, Lofts Bjarna Gísla­sonar og Sól­veigu Birnu Gísla­dóttur.

Eldjárn Capital og MAGNA lögmenn voru ráðgjafar kaupenda í viðskiptunum, en LOGOS lögmannsþjónusta annaðist ráðgjöf við seljendur.

Fréttin var uppfærð eftir að Samhentir sendu frá sér tilkynningu um viðskiptin.