Samkaup hafa sent frá sér tilkynningu til stuðnings allra kvenna og kvára sem hyggjast taka þátt í kvennaverkfallinu sem fram fer 24. október næstkomandi. Í tilkynningu segir að þær konur og kvár sem taka þátt í verkfallinu verði ekki fyrir tekjutapi.
Hjá Samkaupum starfa 712 konur og kvár, eða um helmingur alls starfsfólks fyrirtækisins, og segir fyrirtækið því ljóst að verkfallið muni hafa áhrif á þjónustu til viðskiptavina þennan dag.
„Kvennaverkfallið mun vissulega hafa áhrif á okkar starfsemi en við erum tilbúin að mæta því. Þetta snýst um að vekja athygli á störfum kvenna og kvára og við styðjum heilshugar baráttu þeirra fyrir jöfnum kjörum og tækifærum sem og baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi. Þess vegna höfum við frætt starfsfólkið okkar um kvennaverkfallið og hvatt þau sem geta og vilja til að taka þátt í því. Með þessu tökum við skýra afstöðu í baráttunni og hvetjum aðra atvinnurekendur til að gera það sama,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa.
Samkvæmt fyrirtækinu er launamunur kynjanna hjá Samkaupum í dag 0,2%.