Samkaup, sem rekur verslanir undir merkjum Nettó, Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og Iceland sagði upp 22 af 56 starfsmönnum á skrifstofu sinni í dag. Starfandi forstjóri Samkaupa, Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, staðfestir þetta í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is.
Uppsagnirnar ná til starfsfólks á skrifstofu og yfirstjórnar félagsins en hafa engin áhrif á starfsfólk verslana. Tekið er fram að uppsagnirnar nái til allra deilda skrifstofunnar. Ekki er gert ráð fyrir frekari uppsögnum í tengslum við uppsagnirnar.
Heiða segir að rekstrarniðurstaða Samkaupa á síðasta ári hafi verið undir væntingum. Þá sé mikilvægt sé að skapa svigrúm í rekstri fyrirtækisins til að efla og auka þjónustu.
Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá tapaði samstæða Samkaupa 910 milljónum króna árið 2024 samanborið við 268 milljóna hagnað árið 2023.
Hluthafar að 98,5% hlut í Samkaupum hafa undirritað kaupsamning um kaup Orkunnar á Samkaupum. Kaupverðið verður greitt með afhendingu á nýju hlutafé í Orkunni. Samrunatilkynning vegna samruna Orkunnar og Samkaupa er nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.