Félag ráðgjafarverkfræðinga, Mannvirki - félag verktaka og Samtök arkitektastofa, með stuðningi Framfararsjóðs Samtaka iðnaðarins, hafa gefið út ný viðmið við gerð kostnaðaráætlana verklegra framkvæmda í mannvirkjagerð á Íslandi.
Útfærsla kostnaðaráætlana hefur hingað til ekki verið samræmd hér á landi þar sem hver hagaðili á markaðnum hefur komið sér upp sínu eigin verklagi við gerð og greiningu kostnaðaráætlana.
„Með útgáfu þessarar nýju aðferðarfræði er því stigið framfaraskref í að samræma gerð kostnaðaráætlana til að tryggja sama skilning og aðferðir við gerð þeirra, auk þess að tryggja aukinn rekjanleika kostnaðaráætlana við framúrkeyrslu verklegra framkvæmda,“ segir í tilkynningu.
Markmiðin með útgáfunni:
- Skapa sameiginlegan skilning á markaðnum, hugtökum og orðskýringum
- Búa til viðmið til að meta hversu vel umfang verkefnis er skilgreint
- Auka rekjanleika á framúrkeyrslu
Útgáfan er ætluð verktökum, ráðgjöfum, verkfræðingum, hönnuðum og verkkaupum, hvort heldur eru opinberir verkkaupar eða verkkaupar á almennum markaði.
Opnaður hefur verið nýr vefur, kostnadur.is, þar sem hægt er að nálgast gögnin.