Pro­vision ehf., sem rekur gler­augna­verslanirnar Eyes­land og er leiðandi í inn­flutningi á augn­heil­brigðis­vörum, og GG Optic ehf., sem rekur gler­augna­verslanirnar Augað og ProOptik, hafa sam­einað rekstur sinn undir nafni Pro­vision. Þetta kemur fram frétta­til­kynningu frá fyrir­tækjunum.

Með sam­einingunni verður nafni gler­augna­verslunarinnar ProOptik í Kringlunni og Spönginni breytt í Eyes­land og verða út­sölu­staðir Eyes­land því fimm talsins, sam­kvæmt til­kynningu.

Augað í Kringlunni, sem er hluti af sam­einuðu fé­lagi, verður á­fram rekið undir eigin vöru­merki.

„Það hefur verið langur en jafn­framt spennandi að­dragandi að sam­einingu fé­laganna og verk­efnið á­huga­vert þar sem við sam­einingu verður til öflugt fé­lag á markaði með á­herslu á frekari vöxt og þjónustu­fram­boð á ís­lenskum gler­augna- og augn­heil­brigðis­markaði,“ segir Hilmar Ingi­mundar­son, stjórnar­for­maður Pro­vision ehf.

„Sam­einað fé­lag stendur á traustum grunni og getur veitt við­skipta­vinum sínum breitt vöru­fram­boð og fram­úr­skarandi þjónustu.“

Á síðasta ári opnaði Eyes­land gler­augna­verslun á Kefla­víkur­flug­velli.

Pro­vision ehf. rekur gler­augna­verslanir Eyes­land í Kringlunni, Glæsi­bæ, Granda, Kefla­víkur­flug­velli og Spönginni innan tíðar auk Augans í Kringlunni.