Mér fannst þetta svolítið rómantískur samruni Kviku og Íslandsbanka - minnti mig á samruna FBA og Íslandsbanka sem leysti mikla krafta úr læðingi og tengdi saman ungan kraft og reynslu á þeim tíma, bjó til stærsta og sterkasta bankann á Íslandi á þeim tímapunkti. Þannig að mér fannst þetta svolítið rómantískt að það tækist að ná Kviku banka og Íslandsbanka saman,“ segir Lárus Welding, fyrrum forstjóri Glitnis, í nýjasta hlaðvarpsþætti Chess after Dark.
Bankarnir hófu samrunaviðræður í febrúar en Kvika sleit viðræðunum í lok júní, skömmu eftir að sátt Fjármálaeftirlitsins við Íslandsbanka var birt og boðað var til stjórnarkjörs hjá síðarnefnda bankanum. Kvika sagði þó ljóst að ávinningur af samrunanum gæti orðið verulegur og lýsti yfir vilja til hefja viðræður á ný.
Lárus, sem starfar sem rekstrarstjóri Stoða fjárfestingarfélags, þriðja stærsta hluthafa Kviku með 6,8% hlut, var spurður út í hvort hann geri ráð fyrir að samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku hefjist að nýju. Hann segir að það verði að koma í ljós en sagði Stoðir telja að það væri töluvert mikil samlegð fólgin í að sameina bankana.
„Regluverkið er orðið svo mikið og menn eru nú ekkert að draga úr hér á Íslandi, það er bara allt regluverk sett inn af fullum þunga. Þá þarftu náttúrulega bara stórar einingar til að geta staðið undir því og vera með hagkvæman banka til þess að geta veitt hagkvæma þjónustu.
Menn gleyma því oft að á endanum þá eru það þeir sem þurfa að nota fjármálaafurðir - fólkið í landinu og öll fyrirtækin - sem borga fyrir þetta allt saman. Það kostar að vera með tvöfalt meira eigið fé en flestir bankar á Norðurlöndum og 100% öryggi, og bankarnir eru litlir. Það er búið að vera að kvarta undan því mikið að í þeirra útgáfum úti eru þeir ekki með nógu stórar útgáfur til þess að geta fengið góð kjör o.s.frv.“
Seðlabankinn reiddi mjög hátt til höggs
Lárus, sem stýrði forveranum Glitni á árunum 2007-2008, var einnig spurður út í gagnrýni á söluna á 22,5% eignarhlut í Íslandsbanka í mars 2022. Hann tók undir þau sjónarmið að helstu mistökin hafi verið að bankinn var sjálfur söluráðgjafi í ferlinu.
„Ég veit alveg af hverju þau mistök urðu, af því að Íslandsbanki var sjálfur söluráðgjafi í [frum]útboðinu sem gekk vel. Þá gera menn þessi mistök.“
Lárus segir þó að salan hafi verið vel heppnuð og enginn hlutaðeigandi hafi orðið fyrir fjártjóni. Vissulega þurfi að fylgja öllum reglum stjórnvalda en um hafi verið ræða óviljaverk, yfirsjón og mistök hjá góðu fólki. Tjónið hafi einkum snúið að orðspori.
„Persónulega finnst mér Seðlabankinn hafa reitt mjög hátt til höggs í þessu máli […] en ég er að sama skapi mjög glaður að sjá að það sé hægt að loka þessum málum með því að menn lærðu lexíur og það var greidd sekt. Það er það sem Seðlabankinn vill leggja áherslu á.“
Eftir að málið var yfir eitt ár á borði Fjármálaeftirlitsins sé fagnaðarefni að niðurstaða sé komin í málið og búið að leggja línurnar til að koma í veg fyrir að atriðin í sáttinni endurtaki sig.
„Ok, núna erum við búnir að læra og höldum áfram. Guði sé lof. Ef menn hefðu farið með þetta mál eitthvað lengra, þá værum við að bíða í tíu ár eftir að það kæmi einhver niðurstaða.“
Lárus talar um Íslandsbankasöluna og mögulegan samruna Íslandsbanka og Kviku frá 1:15:18-1:21:21.