Undanþágunefnd Eflingar samþykkti í kvöld um 70 undanþágubeiðnir og hafnaði þremur vegna verkfallsaðgerða bifreiðastjóra sem hefjast á morgun. Nefndin segir í tilkynningu að „í örfáum tilvikum var nánari rökstuðnings óskað eða aðeins orðið við beiðni að hluta“.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði við mbl.is í kvöld að hátt í 200 undanþágubeiðnir hefðu borist stéttarfélaginu.

Nefndin fundar að nýju á morgun þar sem enn er eftir að fara í gegnum margar fyrirliggjandi umsóknir, mestmegnis frá smærri aðilum, að því er segir í tilkynningunni.

Undanþágunefndin samþykkti ótímabundnar undanþágur til allra aðila sem sóttu um undanþágur vegna almannaöryggis.

Fram kemur að meðal þeirra sem sóttu um, fengu undanþágur og hafa fengið svar afhent eru Ríkislögreglustjóri, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Rauði krossinn, Strætó, Ríkisútvarpið og vetrarþjónusta Vegagerðarinnar.

Nefndin hefur að auki átt í samskiptum við fleiri aðila, svo sem Landspítalann, sem vinna að undirbúningi undanþágubeiðna sem skilað verður inn á næstu dögum.