Stýrivextir Seðlabankans eru of háir og aðhaldsstig peningastefnunnar of mikið um þessar mundir að mati Samtaka iðnaðarins,“ segir í nýrri grein á heimasíðu samtakanna. Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans verður kynnt á miðvikudaginn næsta.

Samtök Iðnaðarins (SI) segja mikilvægt að Seðlabankinn gæti hófs í aðgerðum sínum og „beiti vaxtatækjum sínum af varúð, sérstaklega við þær aðstæður sem nú eru upp í íslensku samfélagi“. Gæta þurfi að baráttan við verðbólguna verði með þeim hætti að efnahagslegum og félagslegum kostnaði verði haldið í lágmarki að mati SI.

„Hægt hefur umtalsvert á hagvexti og sjást merki þess víða, m.a. á tölum um neyslu og fjárfestingu. Ljóst er að hátt vaxtastig Seðlabankans er farið að hafa mikil áhrif á heimilin og fyrirtækin í landinu og viðbúið að þau áhrif verði enn meiri og sýnilegri á næstunni.“

Sér til rökstuðnings vísa SI m.a. til þess að verðbólgan hafi dregist saman úr 10,2% í 7,9% frá því í febrúar. Samtökin segja að búist sé við frekari hjöðnun verðbólgunnar á næstunni og samhliða því hafi verðbólguvæntingar lækkað. Á sama tíma hafi dregið úr hagvexti og hagvaxtarhorfur hafa versnað „ekki síst eftir að jarðhræringarnar á Reykjanesskaga hófust“.

Segjast ekki ein á þessari skoðun

SI bendir á könnun Seðlabankans á væntingum markaðsaðila. Samkvæmt niðurstöðum síðustu könnunar, sem var framkvæmd 6.-8. nóvember sl., töldu 27% svarenda að aðhald peningastefnunnar sé of þétt.

„Samtök iðnaðarins eru ekki ein um þá skoðun að stýrivextir bankans séu of háir um þessar mundir.“

Hlutfallið hefur farið hækkandi á síðustu misserum en til samanburðar var það 15% fyrir ári og 0% fyrir tveim árum. Umrætt hlutfall fór yfir 70% á fyrr árshelmingi 2020.

„Áhrif mikilla hækkana stýrivaxta undanfarin misseri eru að koma fram og munu halda áfram að gera það á næstu mánuðum enda tekur nokkurn tíma fyrir vaxtabreytingar að hafa áhrif.“

Kalla eftir aðhaldi og styrkingu framboðshliðar

Samtökin segja einnig mikilvægt að aðrir armar hagstjórnarinnar leggi sitt af mörkum til að ná verðbólgunni niður. Þannig sé mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins nái saman um kjarasamninga í vetur sem renni stoðum undir stöðugleika.

„Boltinn er einnig hjá ríkisstjórninni þar sem mikilvægt er að hún beiti aðhaldi og nýti ríkisfjármálin til að styrkja framboðshlið hagkerfisins og efli framleiðni.“