Seðlabanki Evrópu tilkynnti í hádeginu í dag að hann hefði ákveðið að lækka stýrivexti sína um 0,25 prósentur, úr 2,25% í 2,0%. Ákvörðunin var í samræmi við væntingar markaðsaðila.

Um er að ræða áttundu vaxtalækkun seðlabankans á undanförnum tólf mánuðum en stýrivextir bankans stóðu í 4,5% í byrjun júní 2024.

Vaxtaákvörðunin fylgir í kjölfar þess að verðbólga á evrusvæðinu mældist 1,9% í maímánuði og fór þar með undir 2,0% verðbólgumarkmið seðlabankans.

Fram kemur að bankinn hafi fært niður verðbólguspá fyrir evrusvæðið. Nú er gert ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 2,0% í ár, 1,6% árið 2026 og 2,0% árið 2027.

Nýja spáin fyrir 2025 og 2026 er 0,3 prósentustigum lægri en fyrri spá bankans frá því í mars. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans segir að það skýrist það einkum af því að bankinn gerir ráð fyrir lægra orkuverði en áður, auk þess að evran hafi styrkst.