Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti í dag að frekari vaxtalækkanir væru komnar á bið. Bankinn ætli að sjá hvernig efnahagslífið þróast. Donald Trump forseti hefur krafist frekari vaxtalækkanna og gerði það síðast í Davos á dögunum.
Ákvörðunin á miðvikudag um að halda leiðandi stýrivöxtum í núverandi bili, um 4,3%, fylgdi í kjölfar þriggja samfelldra vaxtalækkana sem hófust í september, þegar vextir voru um 5,3%.
Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, rökstuddi ákvörðun bankans á blaðamannafundi eftir vaxtaákvörðunarfundinn.
Með vaxtastig sem eru nú „talsvert minna hamlandi“ en það var fyrir síðustu árslok, sagði hann: „Við þurfum ekki að flýta okkur.“
Powell sagði að hann væri áfram bjartsýnn á að verðbólga myndi halda áfram að hjaðna á næstu mánuðum, en benti á að bankinn vildi sjá spár sínar um áframhaldandi kólnun verðhækkana rætast áður en vextir yrðu lækkaðir frekar.
„Við virðumst vera í góðri stöðu til að ná frekari framförum“ í baráttunni við verðbólgu, sagði hann. Að vera í stöðu til framfara er eitt, „en að ná þeim er annað.“