Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar sem birtist í morgun.
„Verðbólga minnkaði lítillega milli mánaða í október og mældist 7,9%. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig hjaðnað. Áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu,” segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Samkvæmt nýrri spá Seðlabankans hafa verðbólguhorfur þó versnað.
Peningastefnunefnd segir spennan í þjóðarbúinu hafa reynst meiri en áður var talið og gengi krónunnar lækkað.
Verðbólguvæntingar hafa jafnframt haldist háar og kostnaðarhækkanir virðast hafa meiri og langvinnari áhrif á verðbólgu en áður.
„Þótt áhrif vaxtahækkana undanfarin misseri séu að koma skýrar fram benda verri verðbólguhorfur til þess að það gæti þurft að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar. Þrátt fyrir það hefur peningastefnunefnd ákveðið að halda vöxtum óbreyttum að sinni í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir um efnahagsleg áhrif jarðhræringa á Reykjanesi. Mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Vextir verða því sem hér segir:
11,0% |
10,0% |
9,25% |
9,0% |
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun gera grein fyrir ákvörðun sinni í beinni kl. 9:30. Hægt verður að fylgjast með á vef Viðskiptablaðsins.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, verða á fundinum og kynna einnig efni peningamála.