Seðlabanki Íslands hefur birt tilkynningu á vef sínum þar sem hann gerir athugasemdir við framsetningu á fréttaflutningi um kostnað við endurnýjun og lagfæringar á húsnæði Seðlabankans við Kalkofnsveg.
Fram kemur að raunkostnaður með verðbótum sé tæpir 3,2 milljarðar króna við fimm hæðir og viðbyggingu. Tilboðsverð hafi verið tæpir 3,1 milljarður króna.
„Á þessum tölum er tæplega fjögurra prósenta munur sem verður að engu þegar tekið hefur verið tillit til verðbóta,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.
Fjallað var um kostnaðinn við framkvæmdirnar hjá Seðlabankanum í Morgunblaðinu í dag og á dv.is á þriðjudaginn.
Seðlabankinn segir að ákveðið hafi verið að fara í framkvæmdir fyrir tæpum hálfum áratug vegna nauðsynlegs viðhalds og sameiningar við Fjármálaeftirlitið. Bankinn segir að líkt og komi fram í svari sem birt var á vef Alþingis í vikunni sé framkvæmdakostnaðurinn nánast í samræmi við þá samninga sem gerðir voru að loknum útboðum.
„Það er rétt að hafa í huga að framkvæmdagrunnurinn er sá grunnur sem fæst í tilboðum/útboðum eftir að upphafleg kostnaðaráætlun liggur fyrir.
Fyrsti fasi verkefnisins tókst einkar vel. Honum er að fullu lokið og var kostnaður umfram tilboð óverulegur, eða um 2%. Nú stendur yfir framkvæmd í viðbyggingu Seðlabankans og er því verki ólokið. Tilboð í verkið nam 1.926 milljónum króna og sem stendur er kostnaður við þá framkvæmd 1.802 milljónir króna.“