Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra hefur ákveðið að segja af sér ráðherraembætti en hyggst sitja áfram á þingi. Hún greindi frá þessu í viðtali við RÚV.

Ástæðan fyrir afsögninni er að RÚV greindi frá því í kvöld að Ásthildur Lóa, þingmaður Flokks fólksins, hafi fyrir þremur áratugum, þá 22 ára, átt í ástarsambandi við 15 ára gamlan dreng og eignast með honum son. Ásthildur Lóa kynntist drengnum þegar hún leiddi kristilegt unglingastarf.

Tilkynnt var á blaðamannafundi við myndun nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins í desember að Ásthildur Lóa yrði mennta- og barnamálaráðherra.

Hún var oddviti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi þar sem flokkurinn var efstur í þingkosningunum í nóvember síðastliðnum með 20% atkvæða.