Forstjóri OpenAI, Sam Altman, hefur sakað Mark Zuckerberg, forstjóra Meta, móðurfélags Facebook, um að ganga mjög langt til að sækja til sín starfsmenn frá fyrrnefnda félagsins. Financial Times greinir frá.
Altman sagði í hlaðvarpinu Uncapped, sem bróðir hans stýrir, að Meta hafi boðið sumum forriturum OpenAI, sem þróar spjallmennið ChatGPT, risatilboð um samstarfssamninga með ráðningarbónusa upp á 100 milljónir dala, eða um 12,5 milljarða króna, eða meira og himinhá laun.
„Ég hef heyrt að Meta telji okkur vera stærsta samkeppnisaðila sinn,“ sagði Altman. „Ég tel það skynsamlegt hjá þeim að halda áfram að reyna. Tilraunir þeirra á sviði gervigreindar hingað til hafa ekki gengið jafnvel og þau vonuðust eftir og ég virði áræðni þeirra.“
Hann bætti þó við að enginn af sínum bestu starfsmönnum hafi þegið tilboð Zuckerberg hingað til.
Meta, sem er með markaðsvirði upp á 1,75 þúsund milljarða dala, hefur lýst því yfir að félagið stefni á að sækja hraðar fram á sviði gervigreindar. Zuckerberg hefur verið að handvelja fólk í „afburðagreindar átak“ (e. superintelligence push) Meta og hringja beint í einstaklinga sem hann vill fá inn.
Meta tilkynnti um 15 milljarða dala fjárfestingu í sprotafyrirtækinu Scale AI, sem starfar á sviði gagnamerkja, og réð auk þess einn stofnanda þess, Alexandr Wang.