Tveir danskir frumkvöðlar, Anders Marcus og Peter Krogsgaard Jørgensen, sem stofnuðu sólarorkufyrirtækið Obton árið 2008 efnuðust gríðarlega með því að selja eigin hlutabréf í fyrirtækinu áður en það lenti í alvarlegum rekstrarerfiðleikum.
Þetta kemur fram í ítarlegri fréttaskýringu danska viðskiptablaðsins Børsen en lögreglan er með málið til rannsóknar.
Árið 2021 seldu þeir 45% hlut sinn í Obton til sænska fjárfestingasjóðsins FSN Capital, sem þá mat fyrirtækið á um 3 milljarða danskra króna, tæplega 60 milljarða íslenskra krónaá þáverandi gengi.
Af sölunni hlaut Anders Marcus rúmlega 1 milljarð danskra króna sem rann inn í félag hans Marcus Holding á meðan Krogsgaard Jørgensen fékk sambærilega upphæð sem fór inn í félag hans, Krogsgaard Invest.
„Við erum vissulega stoltir en þetta breytir ekki lífi okkar mikið. Ég keypti mér nýtt úr. Það var mín leið til að fagna,“ sagði Marcus í viðtali við Erhvervsliv Aarhus á sínum tíma.
Obton hefur um árabil verið leiðandi fjárfestingarsjóður fyrir sólarorkugarða í Evrópu og Asíu, með eignir í stýringu fyrir hátt í 30 milljarða danskra króna.
Nú liggja fyrir reikningar fyrir nokkra af þeim sjóðum sem Obton fjárfesti í sem sýna tap upp á marga milljarða. Fyrirtækið hefur jafnframt þurft að leggja niður tugi starfa.
Samtímis hefur danska fjármálaeftirlitið (Finanstilsynet) beint alvarlegum ásökunum að Obton og sent fyrirtækið til lögreglurannsóknar.
Talið er að félagið hafi dregið út ótilkynntar fjárhæðir sem telja milljónum danskra króna úr sjóðum sínum og fært yfir í tvö dótturfélög.
Í tilteknum sjóði, Impact Fund, greindi fjármálaeftirlitið frá því að Obton Forvaltning, dótturfélag samstæðunnar, hefði dregið til sín tæplega 300 milljónir danskra króna í svonefnda „óupplýsta þóknun“, án vitundar fjárfesta.
Samsvarar það um 5,8 milljörðum íslenskra króna.
„Obton hafnar með öllu túlkun Fjármálaeftirlitsins á þessum málefnum og hefur ráðist í sjálfstæða úttekt,“ segir í svari félagsins til Børsen.
Til að forðast gjaldþrot hefur Obton hafið umfangsmikla endurskipulagningu þar sem fyrirhugað er að sameina alla fjárfestingarsjóði undir einu hlutafélagi.
Nýja félagið á að stýra og þróa sólar- og rafhlöðugarða víða um heim.
Nokkrir fjárfestar hafa þó lýst yfir efasemdum um þessa lausn.
Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í maí hafa fjölmargir danskir fjárfestar kært félagið til fjármálaeftirlitsins þar sem þeir segjast fastir inn í nýja félaginu.
Þegar fjárfestar keyptu sig inn í Impact-sjóðinn var þeim lofað árlegri ávöxtun upp á 17,5%, að því tilskildu að fjármagnið væri bundið í allt að 30 ár.
Árið 2023 þurfti Obton hins vegar að viðurkenna að útreikningar fyrirtækisins hefðu verið rangir, raunveruleg ávöxtun væri í reynd 6,6%.
„Ég vil bara komast út úr Obton. En nema ég auglýsi fjárfestinguna á Den Blå Avis fyrir 50.000 danskar krónur, þá losna ég ekki við hana,“ segir Martin Hollerup, sem lagði eina milljón danskra króna í sjóð Obton.
Sjóðafyrirkomulagið hjá Obton virkaði þannig að fjárfestar lögðu fé í afmarkaða sjóði sem áttu og ráku sólarorkugarða. Obton annaðist reksturinn gegn þóknun og fjárfestar áttu að fá reglulegar arðgreiðslur og möguleika á að selja hluti sína í svokölluðum útgönguglugga.
Nú hefur fyrirtækið hins vegar ákveðið að sameina alla sjóði í eitt lokað félag, þar sem fjárfestar verða hluthafar án tryggðrar fjárfestaverndar eða útgönguleiða.
Báðir stofnendurnir hafa sagt af sér öllum framkvæmdarstjórastöðum undanfarin misseri. Marcus situr þó enn í stjórn Obton. Hvorugur þeirra hefur viljað veita Børsen viðtal vegna málsins.
Saga Obton hófst á miklum vexti, ekki síst í kjölfar fjármálakreppunnar þegar fjárfestar sóttu í græn verkefni með góðri ávöxtun.
En nú standa þeir sömu fjárfestar frammi fyrir miklu tapi, samkvæmt Børsen.