Verslanir Krambúða hafa selt rúmlega 26,5 tonn af nammi úr nammibörum sínum það sem af er ári. Í tilkynningu segir að viðskiptavinir hafi tekið vel í endurkomu nammibarsins, sem margir hverjir hurfu í heimsfaraldrinum.

Selfyssingar eru mestu nammigrísir landsins ef marka má sölutölur Krambúðarinnar en í heildina eru Íslendingar nokkuð sælgætisóðir.

„Við fundum fyrir miklum áhuga frá okkar viðskiptavinum að fá aftur nammibari í verslanir, og höfum fengið gríðarlega góðar móttökur. Þegar við opnuðum nammibar í Krambúðinni á Selfossi seldust til að mynda 600 kíló af nammi á fyrstu þrem dögunum, sem var langt fram úr okkar væntingum,“ segir Ásdís Ragna Valdimarsdóttir, markaðsstjóri Krambúðarinnar.

Til samanburðar þá vegur einn fíll um 6 tonn og má því áætla að viðskiptavinir Krambúðarinnar hafi trítlað út með nammipoka sem vega samtals um 4 og hálfan fíl á árinu.

Frá upphafi árs hafa bæst við nammibarir í Krambúðunum á Selfossi, Húsavík, Akranesi, Njarðvík, Flúðum, Kársnesi, Búðardal, Skólavörðustíg og Laugarvatni. Áður fyrr voru einungis nammibarir á Borgarbraut, Búðarkór, HR, Keflavík og Garðabæ.

„Við erum að sjá mikla aukningu í nammikaupum viðskiptavina okkar, en það sem af er ári þá hefur nammisala á nammibörum aukist um heil 522% hjá okkur. Það er okkur ljóst að Íslendingar eru alveg nammióðir, og þá sérstaklega Selfyssingar, en Krambúðin þar í bæ selur langmest af nammi.“