Hluthafar tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds hafa skráð sig fyrir kaupum á útgáfu skuldabréfa félagsins að höfuðstólsfjárhæð 175 milljónir króna, eða öllum þeim skuldabréfum sem félagið auglýsti til sölu nýlega.

Bréfin eru með rétti til að breyta kröfum samkvæmt þeim í hluti í félaginu.

Skuldabréfin eru á gjalddaga 15. september 2025 og bera 15% fasta vexti og hafa breytirétt í hluti í félaginu miðað við gengið 1 króna fyrir hvern hlut nafnverðs. Þá mæla bréfin fyrir um breytiskyldu skuldabréfaeigenda að nánari skilyrðum uppfylltum, að því er segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Ofangreind skuldabréfaútgáfa var samþykkt á hluthafafundi þann 10. janúar síðastliðinn.

Jafnframt samþykktu hluthafar að veita stjórn heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 300 milljónir hluta vegna framhaldsviðræðna við hæfa fjárfesta og að eins heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 100 milljónir hluta, til að bjóða hluthöfum að skrá sig fyrir nýjum hlutum í félaginu.

Félagið, sem er skráð á íslenska First North-hlutabréfamarkaðinn, segir að viðræður við hæfa fjárfesta um frekari fjármögnun á félaginu sem hófust í nóvember haldi áfram næstu vikur í kjölfar þessa áfanga í fjármögnun félagsins.

Samhliða fyrirhugaðri fjármögnun hæfra fjárfesta verði hluthöfum boðið að skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu að nafnverði allt að 100 milljónir króna.

„Líkt og áður var upplýst standa væntingar stjórnar og framkvæmdastjórnar félagsins til þess að í kjölfar fyrrnefndrar fyrirhugaðrar fjármögnunar verði fjármögnun félagsins tryggð út árið 2025. Þá gera stjórn og stjórnendur sér vonir um að félagið verði farið að skila jákvæðu sjóðstreymi á seinni hluta ársins 2026.”