Fáfnir Offshore hefur selt dótturfyrirtækið Fáfnir Norway AS til norska fjárfestingafélagsins Havila Holding. Gengið var endanlega frá sölunni 11. apríl sl. en söluverð nam 179,6 milljónum norskra króna (NOK), eða tæplega 2,2 milljörðum íslenskra króna.

Söluhagnaður nam 79,2 milljónum NOK, um 951 milljón íslenskra króna, en hann verður færður til tekna í ársreikningi 2025.

Innifalið í kaupunum er skipið Polarsyssel sem veitir Sýslumanninum á Svalbarða þjónustu samkvæmt langtímasamningi en skipið var flutt frá Fáfni Offshore hf. til Fáfnis Norway AS á árinu 2024 og í kjölfarið voru langtímalán Fáfnis Offshore endurfjármögnuð af Fáfni Norway.

Í september 2024 voru endurbætur og breytingar gerðar á skipinu í samræmi við kröfur í nýjum þjónustusamning þar sem Fáfnir Offshore bar kostnaðinn.

Skipið hafði verið í eigu Fáfnis frá árinu 2014 en það kostaði yfir fimm milljarða króna á þeim tíma og var dýrasta skip Íslandssögunnar. Kaupandi var eins og áður segir Havila Holding en félagið hefur séð um daglegan rekstur skipsins frá árinu 2015.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.