Eik fasteignafélag undirritaði í dag kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Festingu hf., sem á fasteignir sem hýsa starfsemi Samskipa á Íslandi, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Ráðgert er að kaupin verði fjármögnuð að stórum hluta með lánsfé.
Seljendur Festingar eru Blue Ocean B.V. og SMT Partners B.V. Festing er í 80% endanlegri eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar fjárfestis og Ingibjargar Kristjánsdóttur, aðaleigenda Samskipa, samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins.
„Við erum stolt af því að hafa gengið frá samningi um sölu á Festingu hf. og þeim fasteignum sem félagið hefur byggt upp á síðustu tuttugu árum. Eignirnar, sem að stærstum hluta styðja við starfsemi Samskipa, eru bæði vandaðar og vel staðsettar, og teljast til fremstu innviða fyrir sjó- og landflutninga á Íslandi,“ segir Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Festingar og aðaleigandi.
„Að lokinni sölu munu hluthafar Festingar beina kröftum sínum að þróun nýrrar hafnaraðstöðu í Rotterdam ásamt því að styðja við áframhaldandi uppbyggingu leiðakerfis Samskipa í Evrópu. Það gleður okkur að Eik – öflugt, framsækið og faglegt fasteignafélag – muni taka við Festingu. Við væntum góðs samstarfs við Eik til framtíðar.“
Heildarvirði lækkar um 230 milljónir
Heildarvirði Festingar í kaupunum (e. Enterprise Value) er 15.070 milljónir króna sem er 230 milljóna lækkun frá því að tilkynnt var um samkomulag um viðskiptin í nóvember sl.
Lækkunin er sögð skýrast af breyttu formi leigusamninga fasteigna utan höfuðborgarsvæðisins og fyrirhugaðri fjárfestingu í fasteignum Festingar.
Eik áætlar að áhrif á EBITDA félagsins verði á bilinu 1.130 – 1.140 milljónir króna á ársgrundvelli miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í júní 2025.
43 þúsund fermetrar
Fasteignir Festingar á Íslandi eru um 43 þúsund fermetrar að stærð í 12 fasteignum og hýsa starfsemi Samskipa hf. á Íslandi. Leigusamningar um eignirnar verða til 20 ára frá og með afhendingu á hlutafé Festingar.
Fasteignirnar eru að stærstum hluta staðsettar í Reykjavík en einnig á Akureyri, Dalvík, Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum. Stærsta eignin er um 28.500 fermetra vöruhús Samskipa í Kjalarvogi 7-15.
Undanskilið í kaupunum eru dótturfélög Festingar í Noregi og Færeyjum sem eiga einnig fasteignir sem nýttar eru í starfsemi Samskipa.
„Fasteignir Festingar tilheyra mikilvægum innviðum í samfélaginu og því er ánægjulegt að Eik og seljendur hafi náð saman með undirritun kaupsamnings. Samskip er og verður nauðsynlegur hluti af íslensku samfélagi og hlökkum við til samstarfsins um ókomna framtíð. Eik fasteignafélag vill fjárfesta með atvinnulífinu og við komumst varla nær kjarna þess en með þessum viðskiptum,” segir Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar.