Framtakssjóðurinn Horn III, sem er í rekstri Landsbréfa, hefur skrifað undir kaupsamning um sölu á 50% hlut í Líflandi. Kaupandi er Þórir Haraldsson, sem fyrir átti helming hlutafjár í félaginu. Með þessum kaupum verður Þórir eini eigandi Líflands.
Lífland er sérhæfir sig í framleiðslu á fóðri, sölu á rekstrarvörum til landbúnaðar og sölu á Kornax hveiti. Fyrirtækið rekur sex sérverslanir fyrir bændur og hestamenn víðsvegar um landið.
Lífland á Nesbúegg, annað af stærstu eggjaframleiðendum landsins. Lífland á og rekur auk þess norska dótturfélagið Lifland Agri, sem sérhæfir sig í sölu á búnaði fyrir fjós. Hjá Líflandi og dótturfélögum starfa um 140 starfsmenn.
Saga Líflands nær aftur til ársins 1917 þegar félagið var stofnað af framsýnum bændum með það markmið að sjá um móttöku og dreifingu mjólkur til Reykvíkinga. Síðan þá hefur félagið þróast og er í dag eitt af leiðandi fyrirtækjum á sviði landbúnaðartengdra vara og þjónustu á Íslandi.
„Ég hef mikla trú á framtíð Líflands og þeim grunni sem félagið byggir á. Markmið með kaupunum er að efla enn frekar það góða starf sem hefur verið unnið innan fyrirtækisins. Jafnframt að tryggja að Lífland haldi áfram að vaxa og dafna og verði áfram eitt af leiðandi fyrirtækjum í landbúnaði og matvælatengdri framleiðslu á Íslandi,“ segir Þórir Haraldsson, eigandi Líflands.
„Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka Hermanni M. Þórissyni og Steinari Helgasyni, starfsmönnum Horns III, fyrir gott samstarf og stuðning á liðnum árum.“
ARMA Advisory veitti kaupanda ráðgjöf og Arctica Finance veitti seljanda ráðgjöf. Deloitte og Logos veittu aðilum viðskiptanna jafnframt lögfræðiráðgjöf.
„Lífland hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og hefur reksturinn verið farsæll. Ráðist hefur verið í arðbærar fjárfestingar og reksturinn straumlínulagaður undanfarin ár. Meðfjárfestar okkar sýna hversu mikla trú þeir hafa á rekstri Líflands á komandi árum með kaupum á hlut Horns III nú. Við þökkum Þóri Haraldssyni, stjórn og starfsmönnum Líflands kærlega fyrir gott og árangursríkt samstarf og óskum félaginu velfarnaðar á komandi árum,“ segja framkvæmdastjórar hjá Horni III, í tilkynningu.